28.11.2011 17:27

Sjáumst í Björnslundi

Við bræður vorum í heilsubótargöngu í Björnslundi um helgina þar sem við hittum um 90 börn af leikskólanum Rauðhól en þau voru að leita sér að jólatré sem á að prýða þeirra leikskóla.

Þessi skemmtilega mynd var víst tekin af okkur þar sem við erum að kanna hvort börnin hafi verið þæg í ár en það stendur einmitt í Töfrabókinni okkar góðu.


27.11.2011 14:02

Kveiktum á Couxhaven tré Hafnarfjarðar

Við félagar vorum að röltinu þegar við tókum eftir fólki samankomnu við höfnina í Hafnarfirði þar sem allir voru að fylgjast með söng og ræðum. Við ákváðum að kíkja við og komumst að því að verið var að kveikja á jólatré bæjarins en það er gjöf frá öðrum bæ í Þýskalandi. 

Hér eru myndir.



  • 1