Árni Heiðar Karlsson hóf píanónám 8 ára að aldri við Tónmenntaskóla Reykjavíkur. Síðan lá leiðin í tónlistarskóla FÍH þaðan sem hann tók burtfarapróf í djasspíanóleik í vorið 1998. Það ár hlaut hann Erasmus styrk til náms við Listaháskólann í Amsterdam þar sem hann sótti einkatíma hjá djasspíanóleikaranum Rob Madna en lauk þarnæst burfararprófi í klassískum píanóleik úr Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 2000 undir leiðsögn Halldórs Haralsdssonar. Veturinn eftir sótti hann einkatíma og masterklassa hjá Martino Tirimo í London en lauk svo Mastersgráðu í píanóleik frá háskólanum í Cincinnati haustið 2004 þar sem hann lærði hjá Dr. William Black.