Heimsókn á aðfangadag

Allt frá upphafi höfum við bræður heimsótt fjölda heimila á aðfangadag og skemmtum okkur alltaf jafn mikið. Við komum alltaf tveir saman, því þá er meira fjör og meira gaman. Við stoppum í ca. 10 mín á hverjum stað og segjum sögur, syngjum og umfram allt hlustum á hvað börnin hafa segja því yfirleitt komumst við varla að í okkar frásögn. Við leyfum síðan fólki að taka eins margar myndir og það lystir svo framanlega að við komumst af stað í næstu heimsókn. 

Við byrjum að taka niður pantanir í byrjun desember þó flestar komi nú inn vikuna fyrir aðfangadag. Panta þarf þó fyrir 21. desember svo tryggja má heimsókn á aðfangadag. 

Fyrirkomulagið er er alltaf það sama til að tryggja að allir fái jólasvein á réttum tíma á aðfangadag og að allir fái sína pakka afhenda. 

Við bræður tökum niður heimilisföng allra þeirra sem við ætlum að heimsækja og röðum síðan niður hvernig í rétta röð þannig að auðveldara er fyrir okkur að heimsækja sem flesta. Við hringjum í fólk þann 22. desember og látum vita hvenær reikna má með heimsókninni. Við fáum líka að vita á þeim tímapunkti hvað það er sem krökkunum langar hvað mest í gjöf frá jólasveininum svo við getum nálgast þá pakka áður en við mætum á svæðið. Þetta fyrirkomulag hefur reynst vel í öll þessi 13 ár sem við höfum starfað og gengið rosalega vel. 

Endilega hafið samband í tölvupósti skyrgamur hjá skyrgamur.is til að panta heimsókn tveggja eldhressa jólasveina frá Jólasveinaþjónustu Skyrgáms.