Gjafir

Við hjá Jólasveinaþjónustu Skyrgáms höfum á undanförnum árum sett saman okkar eigin nammipoka sem bæði eru fjölbreyttir og bragðgóðir pokar sem henta öllum. Í þeim er lakkrís, súkkulaði, hlaup, sleikjó og eitthvað sem öllum langar í.

Við bjóðum uppá þá þjónustu að koma með nammipokana á jólaböllin og því er óþarfi að kaupa nóg, sækja og kannski skila. Við komum með það sem þarf að koma með og förum með afganginn, eingöngu er greitt fyrir það sem dreift er hverju sinni.